Ekki gera ekki neitt. Aðgerðir í þurrkatíð.
Í þurrkatíð er bændum og ræktendum vandi á höndum. En það eru til ráð. Lífrænir ræktendur þola þurk betur eins og flest öll önnur áföll og margt kemur þar til. Í fyrsta lagi er rótarkerfið stærra og stekara og í öðru lagi heldur jarðvegur með auknum lífrænum massa betur raka.
Síðasta sumar var mjög þurrt í Evrópu og þar kom þetta bersýnilega í ljós. Eins og sést á mynd af kartöflugrösum sem tekin voru upp í júlí 2018 eru kartöflugrös og kartöflur mun lengra komnar þar sem stunduð er vistvæn/lífrænt vottuð ræktun með aðferðum Vege/PHC.
Hvað er til ráða? Rannsóknarmiðstöð Landbúnaðarins ráðleggur í góðum pisli um heyöflun í þurrkatí vökvun þar sem því verður við komið á verðmæt ræktarsvæði. Ekki er úr vegi að bæta léttum lífrænum áburði þegar vökvað er og eru þar nú aðgengilegar tvær mismunandi blöndur frá Vege ehf.
Vökvun á ræktunartíma.
Vökvað er með því að bæta áburðavökva OPF 7-2-3 sem þynntur er út samkvæmt leiðbeiningum. Hentar þar sem mikill blaðvöxtur er æskilegur.
Vökvað er með því að bæta áburðarvökva OPF 4-2-8 sem þynntur er út samkvæmt leiðbeiningum. Hentar þar sem minni áhersla er á blaðvöxt og aukin áhersla á aldinmyndun.
Áburðargjöf og jarðvegsbæting.
Jarðvegsvinur/Biovin (3-1-2) er mikilvægur jarðvegsbætir og áburður með bakteríum sem styrkja jarðveginn og auka næringarupptöku plantna. Best er að bera hann á við upphaf ræktunar en hægt setja hann á allt árið.
Plöntunærir/OPF 11-0-5 er kröftugur lífrænn köfnunarefnisáburður sem hægt er að gefa fram í júlí. 50% af honum leysist upp á 30 dögum og situr eftir í góðum jarðvegi en eftir það hægist hægt og bítandi á uppleysingu.
Það eru því alltaf góður tími til að grípa inn í. Ekki gera ekki neitt.